Leit 


Velkomin á Hótel Gullfoss

Hótel Gullfoss í brattholti er á bökkum Hvítár skammt frá Gullfossi. Örstutt er í þekktustu náttúruperlur landsins, fjölmargir dagsferðamöguleikar og fallegar gönguleiðir í nágrenninu.

16 tveggja manna herbergi með baði, heitur pottur og veitingasalur fyrir allt að 60 manns. Hótel Gullfoss býður upp á vinalegt viðmót, góðan mat og afslappað andrúmsloft. Á matseðlinum eru íslenskir réttir, fiskur, kjöt og grænmeti og áhersla lögð á hollan mat úr heimabyggð.

Hótel Gullfoss býður alla velkomna og hægt er að sníða dvölina að þörfum mismunandi hópa. Sem dæmi um slíkt má nefna helgardvöl með mismunandi þemu.

Hugmynd að helgardvöl fyrir eldri borgara eða aðra markhópa.
Gisting, morgunverður, hádegis- og kvöldverður. Á kvöldverðarborðinu er lambalæri eins og tíðkast gjarnan á sunnudögum, með tilheyrandi meðlæti og heimalagaður ís.

Til afþreyingar má bjóða upp á eftirfarandi:
Kynning á hugsjónakonunni Sigríði sem fæddist í Brattholti 1874 og varð þekkt fyrir baráttu sína fyrir verndun Gullfoss.
Heimsókn til "Rönku í Kotinu" handverkskonu í Gýgjarhólskoti sem sker út í tré, (handverkskona ársins 2006)
Fallegar gönguleiðir í nágrenninu, sem upplagt er að nýta og njóta þess á eftir að fara í heita pottinn og láta líða úr sér. Húsnæðið er allt á sama gólfi og aðgengi fyrir hreyfihamlaða.

Dæmi um önnur þemu:
Hreystihelgi; skipulögð hreyfing, göngur og fræðsla, íþróttafræðingur.
Dekurhelgi; nudd og pottur, ganga, léttar æfingar, nuddari og yogakennari.
Menningarhelgi; heimsókn í Skálholt, gróðurhús og sögusýning um Íslenska hestinn.
Ævintýrahelgi; sleðaferð á Langjökul, river rafting á Hvítá, hestaferð, fjórhjól í Haukadal.

Aðgengi er gott allt árið. Aðeins 100 km frá Reykjavík.




Hótel Gullfoss í Brattholti - Bláskógarbyggð, 801 Selfoss, Iceland -  354-486 8979 - info@hotelgullfoss.is